BYGGINGASTJÓRN
GÆÐAHANDBÓK
BYGGINGARSTJÓRI
Tökum að okkur verkefna- og byggingarstjórn á smáum sem stórum verkum, hvort sem um er að ræða einföld þróunarverkefni eða flókin framkvæmdaverkefni.
Verkefnastjórnun felur í sér markvissan undirbúning, áætlanir, greiningu áhættuþátta/stýringu, innkaup, framkvæmd, verkefnagát, uppgjör og verklok.
Við höfum reynslu af öllum stigum mannvirkjagerðar.
Höfum innanborðs sérfræðinga með byggingarstjóraréttindi samkvæmt byggingarreglugerð.
Gæðastjórnun felst í að tryggja að vörur og þjónusta uppfylli væntingar og kröfur viðskiptavina sem og aðrar kröfur sem gerðar eru, t.d. í lögum og í reglugerðum. Í þessum tilgangi er byggingarstjórum gert að skyldu í lögum nr. 160/2010 og byggingarreglugerð 112/2012 að vera með gæðakerfi við byggingarstjórn sína. Gæðakerfin eru annað hvort gæðakerfi fyrirtækis, eða gæðakerfi einstaklings. Ef um er að ræða gæðakerfi fyrirtækis, þá vinna starfsmenn fyrirtækisins undir því gæðakerfi, enda hafi þeir réttindi til þess. Fyrirtækinu ber þá að senda Mannvirkjastofnun lista yfir þá starfsmenn sem vinna undir gæðakerfi þess og þá undir hvaða gæðakerfi þeir vinna.
NÁNARI UPPLÝSINGAR
HLUTVERK OG ÁBYRGÐ BYGGINGARSTJÓRA SAMKVÆMT NÝJUM MANNVIRKJALÖGUM!
Grein frá Samtökum Iðnaðarins - PDF
BYGGINGAREGLUGERÐ Á VEF MANNVIRKJASTOFNUNAR
Byggingarreglugerð 112/2012 í heild
Byggingastjóri er sérstaklega ráðinn til starfsins og er fulltrúi verkkaupa í verkinu. Byggingastjóri er ábyrgur fyrir því, gagnvart yfirvöldum og eiganda, að verk séu útfærð í samræmi við teikningar hönnuða og í samræmi við byggingarreglugerð og að fram fari opinberar úttektir á verkþáttum og verkinu í heild í samræmi við byggingarreglugerð. Byggingaryfirvöld á svæðinu þurfa að samþykkja byggingastjórann og ganga frá skráningu hans á verkið. Byggingastjóri þarf að hafa gildandi ábyrgðartryggingu gagnvart því verki sem um ræðir.
Byggingarstjórinn gerir verksamninga við undirverktaka sem hann ræður í samstarfi og með umboði verkkaupa.
...
Byggingarstjórinn skal boða til og vera viðstaddur allar úttektir og hafa umsjón með öflun leyfa og samþykkta á yfirvöldum.
...
Höfum innanborðs sérfræðinga með byggingarstjóra-réttindi samkvæmt nýrri byggingarreglugerð.
...
Sími: 820 4410 Reynir
byggingastjórn